Hugleiðsla og Samvera fyrir barnlausar konur
Jógasetrið, Reykjavík
Sunnudag 6.október 2024 kl 14:00
Úní Arndísar yogakennari, Seiðkona & Perlumóðir býður uppá heilandi samveru og hugleiðslu fyrir Perlumæður.
Perlumóðir er móðir lífsins, hún er móðir fegurðar og ljóma. Kona sem gefur af sér, skapar og breytir heiminum. Hún er móðir margra perlna - en hún getur ekki eignast börn, eða velur það að eignast ekki börn.
Konur án barna eru Perlumæður. Við berum með okkur eiginleika og styrk Móðurinnar - en við getum ekki af okkur börn í eignlegri merkingu. “Börnin okkar” eða Perlur, eins og Úní velur að kalla þær, birtast í formi listaverka okkar, verkefna okkar og öllu því sem við nærum og gefum líf.
Við Perlumæður færum heiminum regnboga okkar og töfra - við nærum, gefum líf og sköpum - það birtist bara ekki í formi lítils barns.
Mætumst í hljóðlátu og kærleiksríku rými. Konur án barna, saman í hring. Perlumæður, með það markmið að heila sárin okkar og stíga sterkari fram á við. Hér dveljum við í hjartanu, í helgu systralagi, með traust og virðingu að sjónarmiði.
Úní Arndísar er ófrjó en hefur tekið titilinn Perlumóðir, í því skyni að umbreyta orku og skynjun á ófrjósemi. Úní hvetur ófrjóar konur að taka titilinn einnig, með stolti, og sanna fyrir heiminum að konur án barna hafi mikilvægu, heilandi hlutverki að gegna á Móður Jörð.
Úní leiðir samveru og hugleiðslu fyrir Perlumæður í Jógasetrinu, og býður allar konur án barna hjartanlega velkomnar.
Hvenær: Sunnudag 6.október 2024 kl 14:00
Hvar: Jógasetrið, Skipholti 50c, 105 Reykjavík
Kostnaður: 8000 kr
Þátttakendur fá bókina "Perlumóðir - kona án barna" að gjöf
Unnur Arndísardóttir gaf nýverið úr bókina Perlumóðir - kona án barna, sem er reynslusaga Unnar um ófrjósemi, þar sem hún deilir því hvað aðstoðaði hana við að komast yfir sorgina. Hún gefur dæmi um jóga, öndunaræfingar og slökun, og hvernig nálgun við Móður Jörð og Gyðjuna aðstoðaði hana við að ná sátt við lífstílinn “barnfrjáls”.
Unnur hefur seinustu 14 árin haldið Freyjudaga, Tungl- og Gyðjuathafnir, þar sem konur koma saman og fræðast um tunglorkuna og hinn helga kvenkraft.
Unnur tengir saman mismunandi hefðir í athöfnum sínum. Hún hefur lært og numið frá Indjánum Norður Ameríku, Yogahefðir austursins og hefur hún einnig tileinkað líf sitt Norrænu Gyðjunni og sór eið sem systir Avalon.
Unnur hefur þróað Íslenskar jarðarathafnir í tengslum við Norræna Árstíðarhjólið, þar sem hún beinir augum okkar að Gyðjunni og hvernig hún birtist í Móður Náttúru allt í kringum okkur.
Unnur er jógakennari og hefur kennt jóga og hugleiðslu frá árinu 2010.
Sem tónlistarkona og tónaheilari semur Unnur tónlist og ljóð tileinkuð Íslensku Gyðjunni og Móður Jörð.
Unnur er ófrjó en hefur tekið upp titilinn Perlumóðir, með von um að breyta viðhorfi heimsins á ófrjósemi kvenna.
Unnur hefur tileinkað lífi sínu Móður Jörð, Gyðjunni og því að lifa lífinu blíðlega.