Gyðjuathöfn til fögnuðar sumri og töfrum systralagsins


Jógahornið Þorlákshöfn - Miðvikudag 22.júlí 2026

Miðvikudaginn 22.júlí fögnum við Gyðjunni Frigg og sumrinu með Gyðjuhátíð, í Jógahorninu í Þorlákshöfn. 


Við komum saman til fögnuðar sumarsins og Gyðjunnar Frigg - en einnig til að fagna systralaginu og töfrum Íslandsdætra. 

Sumarið er tími allsnægta og náttúru í fullum blóma - þegar upplagt er að njóta alls þess góða í lífi okkar. 

Gyðja sumarsins er Frigg - Móðir alls, styrkur og tignarleiki.
Hún sem færir okkur hugrekkið til að leyfa okkur sjálfum að blómstra, og aðstoðar okkur við að skína og vaxa í styrk og fegurð.  

Hún minnir á hugrekkið sem til þarf að halda á draumum sínum í fangi sér, og leyfa þeim svo að rætast og fljúga frjálsum út í alheiminn. Sumarið umvefur okkur birtu sinni og næringu, gefur okkur tækifæri á að njóta náttúrunnar og allri hennar fegurð og ljóma. Við stígum inní styrk okkar og leyfum okkur að sjá að við höfum völdin yfir okkar eigin örlögum & lífi. 

Frigg, hin mikla Móðir, sú sem veit og ber með sér tignarleikann. Hún er drottningin, hin æðsta og er Gyðjukrafturinn í sinni sterkustu mynd. 

Í þessari sumarathöfn tileinkaðri Gyðjunni Frigg útbúum við altari tileinkað Móður Jörð, við fáum hreinsun og blessun sem veitir okkur styrk í að trúa og treysta enn betur á kærleikann og ljósið sem býr innra með okkur öllum. Við hugleiðum og óskum okkur, og þannig leyfum okkur að blómstra inn í sumarsins ljóma.

Allar konur hjartanlega velkomnar.

Hvar: Jógahornið, Unubakka 4, Þorlákshöfn.

Hvenær: Miðvikudaginn 22.júlí kl 18:30

Hvað kostar: 8.000 kr

Íslandsdætur bjóða uppá vörur og varning til sölu að athöfn lokinni.
Í boði verða ilmolíur, kerti, jurtir, skart, bækur og tónlist.
             


Unnur Arndísar seiðkona hefur seinustu 16 árin haldið Tungl- og Gyðjuathafnir, þar sem konur koma saman og fræðast um tunglorkuna og hinn helga kvenkraft.
Unnur tengir saman mismunandi hefðir í athöfnum sínum. Hún hefur lært og numið frá Indjánum Norður Ameríku, Yogahefðir austursins og hefur hún einnig tileinkað líf sitt Norrænu Gyðjunni og sór eið sem systir Avalon.
Unnur hefur þróað Íslenskar jarðarathafnir í tengslum við Norræna Árstíðarhjólið, þar sem hún beinir augum okkar að Gyðjunni og hvernig hún birtist í Móður Náttúru allt í kringum okkur.

Íslandsdætur - er Systralag kvenna sem sótt hafa Gyðjuathafnir og námskeið Unnar Arndísardóttur um Íslenskar Gyðjur og Árstíðir Móður Jarðar.

Systralag kvenna sem áhuga hafa á Gyðjunni og Móður Jörð <3


Úní Arndísar
www.uni.is
[email protected]
s.696-5867