- dagur í töfrum -

Gyðjuathöfn, hugleiðsla, slökun, tónheilun & rúnalestur

Jógahornið Þorlákshöfn
Sunnudagur 28.júlí 2024
kl 10:00-16:00

Sumarið er loksins komið, og færir okkur tækifæri til að blómstra í takt við Móður Náttúru. Í sumrinu er upplagt að hlúa að sér, taka eitt skref til baka, hlusta og skynja andartakið - og anda djúpt. 

Unnur Arndísar býður uppá dagskrá af Gyðjuathöfn, Tónheilun, hugleiðslu, öndun og slökun - þar sem við nærum okkur í sumrinu, hlúum að okkur og finnum styrkinn í því að gefa eftir.

Við byrjum þennan Sunnudagsmorgun á því að hugleiða og óska okkur. Eftir hádegið komum við svo saman í Gyðjuathöfn þar sem Unnur býður þér í næranda trommuferðalag og slökun. Við ferðumst inná við til að sækja mildina okkar, styrkinn og sjálfskærleikann. Við kíkjum einnig í rúnirnar og spilin til að sjá hvaða orku þú tekur með þér inn í sumarið.

Náttúran í sumrinu sínir okkur grósku og vöxt, þegar Móðir Jörð blómstrar í allsnægtum og styrk.  Í sumrinu leynist fegurðin í traustinu til lífsins og til gjafanna sem okkur hafa verið gefnar, sem fleyta okkur inn í nýtt tímabil. 

Það eru töfrandi tímar framundan og við tökum fagnandi á móti sumri, í öllum sínum ljóma. 

Ef þig langar að hlúa að þér og taka þér örlitla pásu til að hlusta og skynja fegurð þína og styrk - komdu og vertu með okkur í nærandi Sumarblíðu Sunnudaginn 28.júlí í Jógahorninu Þorlákshöfn

Hvar: Jógahornið, Unubakka 4, Þorlákshöfn

Hvenær: Sunnudaginn 28.júlí kl 10:00 - 16:00

Hvað kostar: 16.000 kr

Dagskrá

10:00 - 12:00 Morgunhugleiðsla, Gyðjuathöfn & óskir

~ Hádegisverður ~

13:00 - 16:00 Heilunarathöfn, tónheilun & rúnalestur

Innifalið er öll dagskrá - boðið verður uppá te og nasl.
Hádegisverður ekki innifalinn.

Í hádeginu förum við á veitingastaðinn Hafið bláa og njótum þar hádegisverðar og útsýnis við hafið. 

Ef veður leyfir höldum við litla athöfn við hafið eftir hádegisverð, áður en haldið verður aftur í Jógahornið. 

Unnur Arndísar jógakennari og seiðkona, hefur seinustu 14 árin haldið Freyjudaga, Tungl- og Gyðjuathafnir, þar sem konur koma saman og fræðast um tunglorkuna og hinn helga kvenkraft.

Unnur tengir saman mismunandi hefðir í athöfnum sínum. Hún hefur lært og numið frá Indjánum Norður Ameríku, Yogahefðir austursins og hefur hún einnig tileinkað líf sitt Norrænu Gyðjunni og sór eið sem systir Avalon.

Unnur hefur þróað Íslenskar jarðarathafnir í tengslum við Norræna Árstíðarhjólið, þar sem hún beinir augum okkar að Gyðjunni og hvernig hún birtist í Móður Náttúru allt í kringum okkur.

Unnur er jógakennari og hefur kennt jóga og hugleiðslu frá árinu 2010.

Sem tónlistarkona og tónaheilari semur Unnur tónlist og ljóð tileinkuð Íslensku Gyðjunni og Móður Jörð.

Unnur er ófrjó en hefur tekið upp titilinn Perlumóðir, með von um að breyta viðhorfi heimsins á ófrjósemi kvenna.

Unnur hefur tileinkað lífi sínu Móður Jörð, Gyðjunni og því að lifa lífinu blíðlega.

~Uni~
Unnur Arndísar
www.uni.is
[email protected]