*Hugleiðsla og Slökun með Tónheilun*
Fimmtudaginn 12.febrúar kl 19:30
Jógahornið Þorlákshöfn
-Langar þig að eiga ljúfa og friðsæla stund sem nærir líkama og sál?
Unnur Arndísar jógakennari býður uppá notalega hugleiðslustund í Jógahorninu, þar sem hún leiðir hugleiðslu og tónaheilunar-slökun með söng og mjúkum trommuslætti.
Unnur semur og flytur sína eigin tónlist - en hún hefur tileinkað lífi sínu Íslensku Gyðjunni og flytur við þetta tilefni ljóð og tóna tileinkaða Gyðjuorkunni.
Í nútíma samfélagi þar sem allt gerist á miklum hraða er mikilvægt að hægja örlítið á sér og næra líkama og sál. Með hugleiðslu og slökun tengjumst við friðnum hið innra, og færum kyrrð og sátt inní líf okkar og umhverfi.
Engin reynsla af hugleiðslu eða jóga er nauðsynleg til að taka þátt. Einnig er hægt að sitja á stól eða liggja allan tímann og því er hreyfihömlun af öllum toga ekki fyrirstaða þátttöku.
Upplagt til að taka sér örlitla pásu frá dagsins amstri og anda djúpt.
Hvenær: Fimmtudaginn 12.febrúar kl 19:30-20:45
Hvar: Jógahornið, Unubakka 4, Þorlákshöfn
Þátttökugjald er 5000 kr

Unnur Arndísardóttir kennir mjúka blöndu af Hatha og Raja Yoga, með líkamstöðum, öndun og hugleiðslu. Þar sem áherslan er lögð á innri frið og ró.
Unnur hefur stundað yoga frá árinu 1993 en útskrifaðist sem Yogakennari frá Jóga-og blómadropaskóla Kristbjargar árið 2010. Unnur lærði Yoga þerapíu í Transformational Hatha Yoga skólanum á Grikklandi árið 2016, & Restorative Yoga frá Yoga Somatics árið 2018.
Unnur semur og flytur sína eigin tónlist - en hún hefur tileinkað líf sitt Íslensku Gyðjunni og flytur við þetta tilefni ljóð og tóna tileinkaða Gyðjuorkunni.
~Uni~
Unnur Arndísar
www.uni.is
[email protected]