~Hlédrag fyrir Konur án barna~

Vorið 2025

Lærðu að flæða með lífinu í mildri vellíðan,
og í friðsælli orku þess að lifa blíðlega.

Granja San Miguel

Njótum þess að koma saman, Konur án barna,
og finnum máttinn í því að taka okkur hvíld
.

Perlumóðir er móðir lífsins, hún er móðir fegurðar og ljóma. Kona sem gefur af sér, skapar og breytir heiminum. Hún er móðir margra perlna - en hún getur ekki eignast börn, eða velur það að eignast ekki börn. 

Konur án barna eru Perlumæður. Við berum með okkur eiginleika og styrk Móðurinnar - en við getum ekki af okkur börn í eignlegri merkingu. “Börnin okkar” eða Perlur, eins og ég vel að kalla þær, birtast í formi listaverka okkar, verkefna okkar og öllu því sem við nærum og gefum líf. 

Perlumóðirin er skelin sem býr til rýmið, hefur áhrif á umhverfið sitt og skilur eftir sig lit á perlunni sjálfri.
Við Perlumæður færum heiminum regnboga okkar og töfra - við nærum, gefum líf og töfrum - það birtist bara ekki í formi lítils barns.

Perlumæðra Ró er hlédrag/retreat sjálfsástar fyrir konur án barna, þar sem við nálgumst líkama okkar sem dýrmætt hof. Við hlustum á hljóm og hrynjanda lífsins. Við tökum okkur sjálfar í fangið, hlúum að okkur í mýkt og finnum djúpa virðingu gagnvart lífinu með því að tengja við Móður Jörð í athöfnum, og í frið og sátt við lífsins flæði.

Við hreyfum okkur blíðlega í endurnærandi jóga, öndum mjúklega og slökum á í frið og ró.

Við lærum að tengja við Móður Jörð og lífsins flæði með jarðarathöfnum, og finnum sáttina gagnvart eigin lífi og líkama.

Við mætumst í hljóðlátu og kærleiksríku rými, Konur án barna, saman í hring. Perlumæður, með það markmið að heila sárin okkar og stíga sterkari fram á við. Hér dveljum við í hjartanu, í helgu systralagi, með traust og virðingu að sjónarmiði. 

Móðir Jörð er dýrmæt. Alheimurinn er dýrmætur.
Við erum fæddar inn í dýrmætt lífið í líkama sem ber að virða.


Ófrjósemi og lífstíll án barna er okkar súperkraftur - og saman finnum við friðinn og sáttina.  

Þú átt skilið að gefa þér tíma, heita á sjálfa þig og á þína andlegu braut, og finna leiðir til að eiga fallegt samtal við Móður Jörð og þína innri Gyðju í aukinni virðingu og sátt.

Dagskráin felur í sér:

Móður Jarðar athafnir ~ með athöfnum eigum við samtal við Móður Jörð, elementin og við líkama okkar af virðingu.  Athöfn er það að vera vakandi og í meðvitund, að hreyfa sig í mýktinni, í mildri vellíðan og það að elska hvern andardrátt sem okkur er færður. Við færum þakkir til Móður Jarðar, og tileinkum okkur þakklæti í verki fyrir að fá að lifa á þessari undursamlegu jörð. Við snertum Móður Jörð af djúpri virðingu, útbúum altari henni til heiðurs, stígum létt til jarðar í gönguferðum - hlustum og skynjum Móður Jörð og element hennar, og finnum að flæði hennar er nátengt okkar eigin flæði í líkama og lífi.

Jóga ~ með Jóga, Hugleiðslu og Slökun færum við líkama okkar dýrmæta gjöf. Gjöf ástar og virðingar. Við lærum að hlusta á okkar innri Gyðju með því að vera meðvitaðar um flæði lífsins og þess að fá að lifa í líkama. Opnum augu okkar fyrir stærstu gjöfinni - sem er að hafa möguleika á því að anda djúpt. Við hreyfum okkur í mjúku endurnærandi jóga þar sem aðaláhersla verður á hugleiðslu á hreyfingu, öndun og slökun.

Tónaheilun ~ ef Gyðjan gæti sungið til þín sína fegurstu tóna, myndi Hún blessa þig og elska með hverjum andardrætti. Tónlist og tónar færa heilun og blessun, og opna hjörtu okkar fyrir veröld Gyðjunnar, náttúrunnar og verum Hennar.  Mjúkur trommusláttur og söngur opnar leið inn í annan heim, og veitir djúpa slökun og frið.

Við gefum okkur þá gjöf að taka okkur pásu, stíga útúr daglegu lífi og koma saman í hring Perlumæður - Konur án barna, hlúum að okkur og nálgumst þannig friðinn og rónna. 

Megin þema hlédragsins er Systralag - í frið og ró. 

“Nærvera þín og næmni er einstök. Við vinkonurnar höfum ekki verið mikið í jóga en þú bauðst upp á svo mjúka og notalega nálgun að það skipti ekki máli. Hugleiðslur og athafnir auk heilunar voru einnig yndislegar.
Staðsetningin hjá Mariu Jesus í Granja san miguel var eins og að ganga inn á helgan stað. Gestrisnin sem við vorum aðnjótandi, gæði matar og allrar aðstöðu var einstæð.
Það var mjög auðvelt að bara vera í núinu og njóta þess að vera fjarri hinu daglega amstri . Þetta var eins og að stíga nokkra áratugi aftur í tímann á svo góðan hátt þótt vissulega hafi nútímatækni einnig verið á staðnum. 
Ég kom svo sannarlega heim aftur með endurnýjaða orku.”

Lilja Petra - Mars 2023

Ég ber titilinn Perlumóðir með stolti - og býð öðrum barnlausum konum að gera það einnig

Úní Arndísar er ófrjó en hefur tekið titilinn Perlumóðir, í því skyni að umbreyta orku og skynjun á ófrjósemi. Úní hvetur ófrjóar konur að taka titilinn einnig, með stolti, og sanna fyrir heiminum að konur án barna hafi mikilvægu, heilandi hlutverki að gegna á Móður Jörð. 

"Það að hafa gengið þann dimma dal að reyna að eignast börn - að elta þennan draum sem varð aldrei að veruleika - hef ég safnað saman öllu því sem aðstoðaði mig við að komast yfir sorgina. Ég er enn í heilunarferli - því ég geri mér grein fyrir að sem ófrjó kona ber ég alltaf þessi sár með mér. Þetta sár mun alltaf vera þarna - því hefur bara hætt að blæða - og það er hætt að meiða mig eins og það gerði. Ég hef gert mitt besta við að heila þetta sár, en örið verður þarna alltaf. Það hefur gert mig að þeirri konu sem ég er í dag. "

Uni Arndísar, Jógakennari, Tónlistar- og Seiðkona
býður upp á friðsælt hlédrag sem fagnar líkamanum og Móður Jörð
með Jóga, Tónaheilun og Gyðjuathöfnum.

Hvar: Granja San Miguel, Salem, Valensía, Spánn

Hvenær: Vorið 2025

Við njótum dvalar á fallegu fjölskyldusetri og gistiheimili Granja San Miguel í fjallaþorpinu Salem í Valensíu á Spáni.  

María Jesús, eigandi setursins, býður okkur velkomnar á gamalt heimili fjölskyldu sinnar. Þar sem hún hefur seinustu ár byggt upp og útbúið hið fullkomna rými til slökunnar og hlédrags. Við sameinumst í athöfnum og jóga í fallegum og notalegum jógasal Granja setursins, njótum gönguferða í náttúrunni og í fjöllunum í kring, slökum á í baðhúsinu, syndum í sundlaug setursins og síðast en ekki síst gæðum við okkur á gómsætum mat Maríu Jesús á veitingastað hennar. 

Granja San Miguel býður uppá hið fullkomna rými slökunnar og friðar, þegar við stígum útúr daglegu amstri og tökum okkur pásu - en opnar augu okkar einnig fyrir fegurð Móður Spánar. 

Þú getur valið um að gista í einstaklings- eða tveggjamanna herbergi - og endilega láttu okkur vita ef þú ert með fæðuofnæmi eða óþol. 


Hópurinn verður lítill og því eru einungis fá pláss í boði.


Öll dagskrá fer fram á ensku, nema ef einungis Íslendingar verða í hópnum.

Verð:

Tveggjamanna herbergi: €1230 á mann

Einstaklingsherbergi: €1510

Innifalið í verði:
-Jóga, Hugleiðslu & Slökunartímar, námskeið & athafnir

-gisting í 4 nætur með fullu fæði. Boðið er uppá grænmetisfæði með vali um fisk og kjöt einnig, kaffi/te. 

Rétt er að benda á að alkahól drykkir, gosdrykkir og vín eru ekki innifaldir í verði.
En veitingastaður Granja býður uppá úrval á Spænskum vínum. 

Ekki innifalið í verði - en hægt að bóka aukalega: 

Slökunarnudd €60/ 60 mínútur / á mann

Spálestur eða heilun með Uni €90/ 60 mínútur / á mann

Baðhús/SPA fyrir hóp 30€/ á mann/ dagurinn / max 6 mannseskjur

Gönguferð með leiðsögumanni um náttúru l'Ombria del Benicadell €30 / á mann

Við mælum með að bæta við dvöl þína á Granja San Miguel - annað hvort á undan Hlédragi eða eftir. Til að gefa þér meiri tíma til slökunnar, en einnig til að skoða þig betur um svæðið í kring.

Aukanótt í Granja - (næturverð með morgunverði)

€152 tveggja manna herbergi - nóttin á mann

€164 einstaklings herbergi - nóttin á mann



Stígðu inn í hinn helga hring ~ leyfðu þér að taka pásu og hlúa að þínu dýrmæta hofi

Dagskrá:
gæti breyst lítillega  

7:30-8:45 Morgunhugleiðsla og mjúkt jóga

9:00 Morgunverður

11:00-13:00 námskeið / athafnir / gönguferðir í náttúrunni

14:00 Hádegisverður

Laus tími fyrir nudd, meðferðir eða friðarstundir með sjálfri sér.

17:00-18:30 Jóga / Slökun / Tónaheilun

19:00 Kvöldverður 

20:30 Tunglathöfn seinasta kvöldið

Uni Arndísar,  hefur seinustu 13 árin haldið Freyjudaga, Tungl- og Gyðjuathafnir, þar sem konur koma saman og fræðast um tunglorkuna og hinn helga kvenkraft.

Uni tengir saman mismunandi hefðir í athöfnum sínum. Hún hefur lært og numið frá Indjánum Norður Ameríku, Yogahefðir austursins og hefur hún einnig tileinkað líf sitt Norrænu Gyðjunni og sór eið sem systir Avalon.

Uni hefur þróað Íslenskar jarðarathafnir í tengslum við Norræna Árstíðarhjólið, þar sem hún beinir augum okkar að Gyðjunni og hvernig hún birtist í Móður Náttúru allt í kringum okkur.

Sem tónlistarkona og tónaheilari semur Uni tónlist og ljóð tileinkuð Íslensku Gyðjunni og Móður Jörð.

Uni kennir mjúka blöndu af Hatha og Raja Yoga, með líkamstöðum, öndun og hugleiðslu. Þar sem áherslan er lögð á innri frið og ró.
Hún hefur stundað yoga frá árinu 1993 en útskrifaðist sem Yogakennari frá Jóga-og blómadropaskóla Kristbjargar árið 2010. Uni lærði Yoga þerapíu í Transformational Hatha Yoga skólanum á Grikklandi árið 2016, & Restorative Yoga frá Yoga Somatics árið 2018.

Uni hefur hannað og gefið út vefnámskeiðin Norræna Tunglið og Mæðraljós, þar sem hún býður uppá Gyðjuathafnir og hugleiðslur á hverju Nýju Tungli ársins og í hverri árstíð. 

Uni er ófrjó en hefur tekið titilinn Perlumóðir í því skyni að umbreyta orku og skynjun á ófrjósemi. Unnur hvetur ófrjóar og barnlausar konur að taka einnig upp titilinn með stolti, og sanna fyrir heiminum að konur án barna hafi mikilvægu og heilandi hlutverki að gegna á Móður Jörð.

Uni hefur tileinkað lífi sínu Móður Jörð, Gyðjunni og því að lifa lífinu blíðlega.

~Uni~
Unnur Arndísar
www.uni.is
[email protected]